Header Paragraph

Yfir 2.800 brautskrást frá HÍ á laugardag sem er metfjöldi

Image
Brautskráning frá HÍ

Alls munu 2.832 kandídatar brautskrást úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands laugardaginn 24. júní og hefur skólinn aldrei áður brautskráð jafnmarga í einu. Brautskráningarathafnir verða tvær og fara fram í Laugardalshöll og bein útsending verður frá báðum athöfnum fyrir áhugasöm.

Á fyrri brautskráningarathöfninni, sem hefst kl. 10, taka kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Félagsvísindasviði, Heilbrigðisvísindasviði og Hugvísindasviði við prófskírteinum sínum. Samtals brautskrást 606 frá Félagsvísindasviði, 570 frá Heilbrigðisvísindasviði og 167 frá Hugvísindasviði.

Seinni athöfnina, sem hefst kl. 13.30, sækja kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Þar brautskrást 543 frá Menntavísindasviði og 275 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði.

Til viðbótar brautskrást 677 kandídatar af diplómanámsleiðum á grunn- og framhaldsstigi og munu því alls 2.832 kandídatar útskrifast frá Háskóla Íslands á laugardag með 2.840 prófgráður. Til samanburðar voru þeir 2.594 í fyrra sem var einnig met. 

Líkt og áður mun Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, flytja ávarp við athafnirnar og þá munu Rakel Anna Boulter, sem útskrifast með BA-gráðu í almennri bókmenntafræði, og Alec Elías Sigurðarson, sem brautskráist með MS-próf í efnafræði, ávarpa gesti fyrir hönd brautskráningarkandídata á athöfnunum tveimur. Þá mun tónlistarkonan Árný Margrét skemmta gestum.

Háskóli Íslands brautskráði 505 kandídata í febrúar síðastliðnum og því hafa alls 3.337 útskrifast frá skólanum það sem af er ári, sem einnig er metfjöldi.

Kandídatar hafa fengið sent bréf með nánari upplýsingum um fyrirkomulag athafnanna en starfsfólk Háskólans verður enn fremur á staðnum og leiðbeinir kandídötum um sætaskipan.

Leiðbeiningar fyrir streymi og svör við algengum spurningum

1. Get ég horft á viðburðinn í snjallsímanum mínum eða spjaldtölvu?
- Þú getur horft á streymið í vafra í snjallsíma eða spjaldtölvu.
2. Get ég notað Chromecast eða Airplay?
- Já, það birtist lítill “Cast” hnappur neðst í spilaranum sem þú smellir á til að senda strauminn í sjónvarpið þitt. Skoðaðu leiðbeiningarnar sem fylgdu þínu tæki.
3. Verður viðburðurinn aðgengilegur eftir að honum lýkur?
- Hægt verður að horfa á viðburðinn aftur að honum loknum á þessari vefslóð og eða á YouTube rás Háskóla Íslands.
4. Get ég horft á viðburðinn í gegnum Apple TV?
- Þú getur notað tækni á borð við AirPlay til að tengja t.d. síma eða tölvu við Apple TV.
5. Streymið mitt höktir, hvað er til ráða?
- Prófaðu að nota annað tæki, t.d. snjallsíma.
- Notaður Chrome vafrann eða Safari.
- Skiptu yfir í 4G, það virkar oft betur en WiFi, þó að nettenging sé hröð.

Image
Brautskráning frá HÍ

Alls munu 2.832 kandídatar brautskrást úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands laugardaginn 24. júní og hefur skólinn aldrei áður brautskráð jafnmarga í einu. Brautskráningarathafnir verða tvær og fara fram í Laugardalshöll og bein útsending verður frá báðum athöfnum fyrir áhugasöm. MYND/Kristinn Ingvarsson