With its recognized and engaged faculty, BMC offers excellent opportunities for masters students, PhD fellows and postdoctoral fellows to participate in cutting-edge research.
Work environment at BMC
BMC is a dynamic and international research centre. We offer good working conditions with excellent possibilities in an open, collaborative atmosphere. We offer state-of-the-art research facilities in modern laboratories. The research groups at BMC collaborate closely and all our young scientists (masters students, PhD fellows and postdocs) actively participate in all our activities.
Möguleg verkefni á rannsóknarstofu Jens G. Hjörleifssonar, lektor í lífefnafræði við HÍ.
Áhugasamir hafa samband með tölvupósti: jensgh@hi.is
Verkefni 1
Samanburður á utanfrumubóluframleiðslu í HEK293E, HEK293 5B8 og CHO frumum
Utanfrumubólur (EVs) eru 40–180 nm lípíðagnir sem flestar frumu líkamans seyta og er
hægt að erfðabreyta þeim til þess nýta þær sem lyfjaferjur. Þó að HEK293 frumulínur séu
algengar í rannsóknum og framleiðslu líftæknilyfja, eru kínverskar hamstrafrumur (CHO)
viðmiðunarfrumulína fyrir próteinframleiðslu í lyfjaiðnaði, en hafa lítið verið nýttar til EV
framleiðslu. Markmið verkefnisins er að bera beint saman heimtur, gæði og
samsetningu erfðabreytta utanfrumubóla úr tveimur mismunandi HEK293 frumulínum
og CHO-S frumulínu.
Neminn mun rækta báðar frumulínur við sermi-frjálsar aðstæður, einangra
utanfrumubólur með svokallaðir PUREV gripskijutækni og meta magn hreinleika með
nanoparticle tracking analysis (NTA), prótein/agnahlutfalli og Western blot greiningu á
algengum EV-mörkum.
BS eða MS verkefni.
Möguleg verkefni á rannsóknarstofu Jens G. Hjörleifssonar, lektor í lífefnafræði við HÍ.
Áhugasamir hafa samband með tölvupósti: jensgh@hi.is
Verkefni 2
Þróun á sértækum in vitro lyfjaprófum fyrir EGFR gegn brjóstakrabbameini
Epidermal growth factor receptor (EGFR) er týrósín kínasa viðtaki sem gegnir
lykilhlutverki í frumufjölgun, sérhæfingu og boðferlum sem stjórna frumudauða.
Rannsóknahópur okkar hefur einsett sér að skilja betur hvað virkjar þetta boðferli og
hvaða svæði og amínósýrur eru mikilvæg fyrir stjórnun á fosforýleringu ómótaðs C-enda.
Markmið verkefnisins er að þróa nýtt lífefnafræðilegt módel til að fylgjast með
fosfórýleringu C-enda EGFR í rauntíma með prótein-NMR mælingum. Hér munum við
einnig reyna að varpa ljósi á hvernig ómótað C-enda svæði stjórnar virkni týrósín kínasa
hneppisins (TKD) og hvernig lyf eða hindrar hafa áhrif á þetta ferli. Verkefnið mun skapa
grunn að prófunarmódeli þar sem hægt er að meta virkni nýrra lyfja og peptíða sem
beinast að EGFR, sérstaklega til meðhöndlunar brjóstakrabbameina.
MS verkefni. Mögulega BS fyrir einangraða þætti verkefnis.
The research group of Sigríður Rut Franzdóttir is looking for enthusiastic MS students to join our team in spring/fall 2025. We want to bridge knowledge-gaps in the cell biology of neurons and interactions between motor neurons and muscles. For this we study molecules and their actions at high resolution in Drosophila neurons. Interest in advanced microscopy, neurobiology and of course the wonderful fruit flies is a must. The projects provide broad skills ranging from DNA cloning and genome editing; through biochemical analysis and advanced fluorescent microscopy; to mastering microdissection and fly genetics. For further information, please contact sirrut@hi.is
Rannsóknarhópur Sigríðar Rutar Franzdóttur leitar að áhugadrifnum meistaranemum sem hefja myndu nám vor/haust 2025. Teymið vinnur að rannsóknum á frumulíffræði taugafruma og samskiptum hreyfitaugafruma við vöðva. Við rannsökum hlutverk, samskipti og aðgerðir sameinda í ofurupplausn inni í taugafrumum í ávaxtaflugunni Drosophila melanogaster. Ef þú hefur brennandi áhuga á frumulíffræði, taugalíffræði, háþróaðri smásjártækni og vilt verða sérfræðingur í einni aðal tilraunalífverunni er líklegt að þetta sé verkefni við þitt hæfi. Verkefnin veita undirstöðu í fjölmörgum aðferðum, allt frá DNA vinnu og CRISPR raðbreytingum, gegnum örkrufningar og lífefnafræðigreiningar yfir í nýjustu flúrsmásjártækni, auk þess að veita yfirgripsmikillar kunnáttu og færni í vinnu með tilraunalífverur. Áhugasöm hafi samband við Sigríði Rut sirrut@hi.is
Doktorsnemi óskast við rannsókn á erfðaóstöðugleika og myndun krabbameina
Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema til rannsókna á hlutverki MITF í að viðhalda stöðugleika erfðaefnis, með áherslu á DNA-eftirmyndun og DNA-viðgerð. Verkefnið er styrkt til þriggja ára af Rannsóknasjóði Vísinda- og tækniráðs (Rannís) og verður unnið við Lífvísindasetur innan Læknadeildar Háskóla Íslands. Verkefnið byggir á notkun fjölbreyttra nútímalegra aðferða, þar á meðal frumurækt krabbameinsfruma, erfðabreytingum með CRISPR-Cas9, mælingum á DNA-skemmdum og eftirmyndunarálagi (t.d. DNA fiber assays og 53BP1 foci), prótein- og DNA-bindingargreiningum (t.d. CUT&RUN), auk annarra sameindalíffræðilegra, lífefnafræðilegra og frumulíffræðilegra aðferða.Stefán Sigurðsson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands verður leiðbeinandi í verkefninu.
Starfssvið
Doktorsneminn mun rannsaka hvernig MITF hefur áhrif á eftirmyndun DNA og viðgerð DNA-skemmda, með það að markmiði að varpa ljósi á hlutverk umritunarþáttarins MITF í viðhaldi stöðugleika erfðamengis. Sérstök áhersla verður lögð á eftirmyndunarálag, DNA-skemmdasvörun og áhrif mismunandi MITF-ísóforma á frumustarfsemi.
Hæfniskröfur
- Meistarapróf í lífefnafræði, sameindalífvísindum eða skyldum greinum. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.
- Reynsla af sjálfstæðum vísindastörfum á rannsóknastofu með lífefnafræði-, sameindalíffræði- og frumulíffræðilegum aðferðum.
- Reynsla af vinnu við frumuræktir spendýrafruma.
- Góð tölvufærni æskileg.
- Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.
- Sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptafærni.
Ráðning í starf doktorsnema er háð því að umsókn viðkomandi um doktorsnám hafi verið samþykkt, sbr. Doktorsnám Heilbrigðisvísindastofnun
Umsóknarferli
Áætlað er að viðkomandi hefji störf eigi síðar en í september 2026.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
- Greinargerð, þar sem umsækjandi lýsir hvernig hann uppfyllir skilyrði starfsins, hvers vegna hann hefur áhuga á að vinna verkefnið og hugmyndum sínum um framlag til verkefnisins (hámark 2 blaðsíður).
- Ferilskrá.
- Staðfest afrit af prófskírteinum (grunn- og meistaranám) og einkunnadreifing.
- Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer.
- Yfirlit yfir birtingar.
- Umsækjendum er einnig boðið að senda PDF útgáfu af meistararitgerð sinni (á hvaða tungumáli sem er), sem og aðrar birtingar sem við eiga (hámark 5 skjöl).
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026
Nánari upplýsingar veitir: Stefán Þórarinn Sigurðsson
Group leaders at the BMC are always looking for highly motivated PhD fellows and postdocs. If there are currently no open calls posted on our website, excellent PhDs and postdocs are encouraged to apply to one of our groups for fellowships at any time. The chances for a position at BMC are increased significantly if you contact us well ahead of time. Please contact the Group Leader you wish to work with directly and please enclose the following materials:
- Cover Letter/letter of interest
- CV
- Three (3) letters of reference
Send email to skb@hi.is.