Header Paragraph

Uppbygging ástralska RNA vistkerfisins - fyrirlestur 22. júní

Image
Askja í Vatnsmýrinni

Páll Þórðarson, prófessor í efnafræði, University of New South Wales (UNSW) og forstjóri UNSW RNA Institute Sydney, Ástralíu

Fyrirlestur í Öskju, stofu 132, 22. júní kl 11:00

Uppbygging Ástralska RNA vistkerfisins (Building the Australian RNA ecosystem)
Páll Þórðarson hefur starfað sem prófessor í efnafræði við University of New South Wales síðan 2007 þar sem hann stundar rannsóknir á sviði nanomedicine, supramolecular og lífeðlisfræðilegrar efnafræði. Undanfarin ár hefur hann leitt hóp vísindamann sem hafa byggt upp rannsóknir á svið líf- og efnafræði RNA sem hefur nú leitt til nýrrar stofnunar sem nefnist UNSW RNA Institute og er leidd af Páli. 

Páll hefur einnig leitt samstarf 14 háskóla í New South Wales um uppbyggingu á svið RNA með það að markmiði að efla rannsóknir á sviðinu en einnig setja traustar stoðir undir RNA-iðnaðinn í Ástralíu. Páll mun segja okkur frá þessu starfi og hvernig ætlunin er að byggja upp þekkingu á RNA í Ástralíu.

Text

Páll Þórðarson, prófessor í efnafræði, University of New South Wales (UNSW) og forstjóri UNSW RNA Institute Sydney, Ástralíu, heldur fyrirlestur í Öskju 22. júní.
 

Image
Image
Páll Þórðarson