Physiology
Hvenær
8. May 2025
15:00 til 16:00
Hvar
Læknagarður
Stofa 343
Nánar

Aðgangur ókeypis
 

Fimmtudaginn 08. maí kl. 15:00 - 16:00 flytur Margrét Helga Ögmundsdóttir sinn prófessorsfyrirlestur í stofu 343, 3. hæð, Læknagarði.

Margrét Helga Ögmundsdóttir fæddist þann 24. janúar 1981. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2001 og BS-prófi í lífefnafræði frá Háskóla Íslands árið 2005. Margrét Helga lauk doktorsnámi við Oxfordháskóla í Bretlandi árið 2010, þar sem hún rannsakaði efnaskipti krabbameina. Margrét Helga hefur unnið að rannsóknum og kennslu við Háskóla Íslands frá 2011 og snúa rannsóknir hennar að frumu- og sameindalíffræði krabbameina. Hún hefur einkum skoðað tengsl niðurbrots stórsameinda í frumum við myndun og framþróun krabbameina.

 

Margrét Helga Ögmundsdóttir
Share