Á fimmta hundrað þreytir inntökupróf við Læknadeild og Tannlæknadeild
Rúmlega 420 manns hafa innritað sig í inntökupróf í læknisfræði, sjúkraþjálfunarfræði og tannlæknisfræði við Háskóla Íslands sem fara fram dagana 5. og 6. júní. Hluti þátttakenda þreytir prófið á Akureyri en þetta er í fyrsta sinn sem skólinn býður upp á þann möguleika.
Þetta er í þriðja sinn sem umsækjendur um nám í tannlæknisfræði þreyta sama inntökupróf og þau sem hyggja á nám í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði. Alls stefna 55 á að þreytta inntökuprófið með það fyrir augum að hefja nám í tannæknisfræði, 276 hyggja á nám í læknisfræði og 93 í sjúkraþjálfunarfræði. Samanlagt eru þetta 424 manns sem er svipaður fjöldi og í fyrra.
Fimmtán umsækjendanna þreyta prófið á Akureyri og eru þau fyrstu sem gera það. Með því að bjóða upp á inntökuprófið norðan heiða vill Háskóli Íslands koma betur til móts við nemendur víða um land sem hafa áhuga á að þreyta prófið.
Líkt og undanfarin ár miðast fjöldi þeirra sem fá inngöngu í námsleiðirnar við afkastagetu bæði deilda og sjúkrahúsa við þjálfun nemenda. Að þessu sinni verða 75 umsækjendur teknir inn í læknisfræði og 40 í sjúkraþjálfunarfræði. Þá verður allt að 40 nemendum boðið að hefja nám í tannlæknisfræði í haust. Í desember fara svo fram samkeppnispróf í tannlæknisfræði eins og lengi hefur tíðkast og átta nemendum verður boðið að halda áfram námi á vormisseri 2026.
Í Reykjavík fer inntökuprófið fram í nokkrum byggingum Háskóla Íslands en á Akureyri þreyta þátttekendur prófið í Háskólanum á Akureyri. Allir þátttakendur taka prófið í prófakerfinu Inspera og geta ýmist nýtt eigin tölvur eða tölvur sem Háskóli Íslands lánar þeim til próftöku. Inntökuprófið tekur tvo daga líkt og áður og í því eru sex tveggja tíma próflotur.
Eins og fyrri ár geta þau sem fara í inntökuprófið en fá ekki inngöngu skráð sig í aðrar deildir Háskóla Íslands eftir að niðurstöður hafa verið birtar.

Rúmlega 420 manns hafa sig í inntökupróf í læknisfræði, sjúkraþjálfunarfræði og tannlæknisfræði við Háskóla Íslands sem fara fram dagana 5. og 6. júní. MYND/Kristinn Ingvarsson