Header Paragraph

Krabbameinsfélagið veitir rannsóknarstyrki fyrir 71 milljón króna

Image
Styrkþegar Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins 2023

Þann 21. júní sl. var úthlutað í sjöunda sinn úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins. Tólf rannsóknir voru styrktar um 71,1 milljón króna. Fjórar nýjar rannsóknir hlutu styrki og átta rannsóknir hlutu framhaldsstyrki. Styrkumsóknir í ár voru 28. Í ár var auk þess í fyrsta sinn úthlutað styrkjum úr Rynkeby-sjóði Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Tvær rannsóknir voru styrktar um samtals 12,9 milljónir króna.

Við úthlutunina gerðu Ragnheiður Haraldsdóttir, formaður stjórnar Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins, og Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, mikilvægi sjóðsins að umtalsefni. Vísindamenn hafa lýst stofnun sjóðsins sem byltingu í krabbameinsrannsóknum hér á landi.

Sjóðurinn er fjármagnaður með styrkjum frá almenningi og fyrirtækjum í landinu og alltaf þarf að hafa hugfast að sjóðurinn nái þeim markmiðum sem sett voru í upphafi, að hann styrki rannsóknir tengdar forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga og rannsóknir tengdar börnum og fullorðnum. Áskoranir tengdar fjölgun krabbameinstilvika og fjölgun lifenda hér á landi á næstu árum eru mjög stórar og afar brýnt að möguleikar til vísindarannsókna séu góðir. Að almannaheillafélag geti rekið svo myndarlegan sjóð er langt frá því að vera sjálfsagt og til að svo megi verða áfram verða allir að leggjast á eitt. 

Frá upphafi hafa verið veittir 83 styrkir úr sjóðnum, til 47 rannsókna. Heildarupphæð styrkjanna nemur 455,5 milljónum króna.

Styrkþegar Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins 2023 eru:

  • Berglind Eva Benediktsdóttir hlýtur 4.800.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Sækni sérhannaðra utanfrumubóla í EGFR-jákvæðar brjóstakrabbameinsfrumur​.
  • Berglind Ósk Einarsdóttir​ hlýtur 8.000.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Hlutverk MITF í hindrun ónæmissvars sortuæxla​.
  • Guðrún Valdimarsdóttir​ hlýtur 6.000.0000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Æxlingar úr brjóstakrabbameinssjúklingum meðhöndlaðir með æðaþels-sértækum sameindalyfjum.
  • Gunnhildur Ásta Traustadóttir hlýtur 2.000.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Mat á áhrifum sértækrar peptíð-ferju á krabbameinsfrumur í þrívíðri rækt​.
  • Jens G. Hjörleifsson hlýtur 5.500.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Þróun á hrifilnæmum sykurrofshindrum gegn krabbameini​.
  • Margrét Helga Ögmundsdóttir hlýtur 8.000.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Hlutverk ATG7 í samspili uppbyggingar og niðurbrots í krabbameinsfrumum​.
  • Nanna Friðriksdóttir hlýtur 2.400.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Forprófun á íslenskri þýðingu spurningabanka um aukaverkanir og einkenni hjá einstaklingum með krabbamein (NCI PRO-CTCAE).
  • Pétur Orri Heiðarsson​ hlýtur 7.900.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Hlutverk óreiðusvæða í starfsemi MITF.
  • Sigurður Yngvi Kristinsson​ hlýtur 7.800.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Klínískt notagildi frumu-flæðisjárrannsókna í forstigum mergæxlis og áhrif nærumhverfis mergæxlisfrumna á sjúkdóms-framvindu.
  • Stefán Sigurðsson​ hlýtur 8.000.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Hlutverk MITF í að viðhalda stöðugleika erfðaefnisins​.
  • Tómas Guðbjartsson hlýtur 2.800.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Nýjungar í skurðmeðferð lungnakrabbameina.
  • Þórhildur Halldórsdóttir hlýtur 7.900.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Seinkun aldursklukkunnar​.

Rósa Guðbjartsdóttir, formaður Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, afhenti styrki úr Rynkeby-sjóðnum.

Styrkþegar úr Rynkeby-sjóði​ Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna 2023 eru​:

  • Linda Viðarsdóttir hlaut 10.000.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Hlutverk FGD5-AS1 í beinsarkmeinum​.
  • Ragnar G. Bjarnason hlaut 2.916.000 kr. ​styrk fyrir rannsóknina: Síðbúnar afleiðingar krabbameina í æsku: Heilsufar, lífsgæði og hjarta- og efnaskiptatengdir áhættuþættir á fullorðinsaldri​.
Image
Styrkþegar Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins 2023

Styrkþegar Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins 2023.