Header Paragraph

Hljóta ársfundarverðlaun fyrir uppbyggingu innviða við HÍ

Image
Jóna Freysdóttir og Óttar Rolfsson

Hópur vísindamanna og annars starfsfólks sem stendur að umfangsmiklum innviðaverkefnum við Háskóla Íslands tók við ársfundarverðlaunum skólans í Hátíðasal Aðalbyggingar 15. júní að viðstaddri Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Innviðirnir snerta vísindastarf á öllum fræðasviðum skólans.

Ársfundaverðlaunin voru nú afhent í fjórða sinn en þau eru veitt árlega hópum eða teymum sem þykja hafa sýnt sérstakt frumkvæði og forystu við uppbyggingu framúrskarandi starfs innan skólans. Handhafar ársfundarverðlauna HÍ eru valdir í sameiningu af rektor og forsetum allra fimm fræðasviða Háskóla Íslands.

„Með verðlaununum er undirstrikað að alla daga er unnið þrotlaust og merkilegt starf innan Háskóla Íslands – starf sem verðskuldar viðurkenningu, hvort sem það er á sviði náms og kennslu, rannsókna og nýsköpunar, jafnréttismála, samfélagsþátttöku eða frumkvæðis nemenda,“ sagði Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, þegar verðlaunin voru afhent á ársfundi skólans að viðstöddu fjölmenni.

Alls fengu átta aðilar tengdir innviðaverkefnum innan skólans viðurkenningu. Á meðal þeirra eru tvö verkefni á vegvísi Innviðasjóðs sem aðilar á Lífvísindasetri leiða, en þau eru:

Efnagreining, frá frumefnum til lífsameinda

Verkefnið miðar að því að byggja upp og bæta aðgengi að innviðum í efnagreiningum sem nýtast munu við rannsóknir, þróun og nýsköpun í læknisfræði, lyfjafræði, líffræði, lífefnafræði, sameindalíffræði, líftækni, næringar- og matvælafræði, efnafræði, efnaverkfræði og heilbrigðisverkfræði. Óttar Rolfsson prófessor í kerfislíffræði við Læknadeil HÍ tók við verðlaununum fyrir hönd hópsins.

Frá sameindum til sniðlækninga: Heildstæð aðstaða fyrir nútímalífvísindi

Verkefnið miðar að því að byggja upp fullkomna rannsóknaraðstöðu fyrir lífvísindi í landinu sem nýst getur við greiningar DNA- og RNA-sameinda, erfðabreytingar á frumum og dýrum og til að auka tengsl lífvísindarannsókna við klínískar rannsóknir. Jóna Freysdóttir prófessor í ónæmisfræði við Læknadeild HÍ tók við verðlaununum fyrir hönd hópsins.

Fréttina í heild sinni og upplýsingar um aðra verðlaunahafa má finna á vef HÍ.

Image
Jóna Freysdóttir og Óttar Rolfsson