Ragnhildur Þóra Káradóttir, prófessor

Ragnhildur Þóra Káradóttir, prófessor við Cambridge-háskóla og Læknadeild Háskóla Íslands, hefur verið kjörin í Akademíu evrópskra sameindalíffræðinga (European Molecular Biology Organization – EMBO) fyrir framúrskarandi framlag til vísindastarfs á sviði mýelínlíffræði, mýelínendurnýjunar og aðlögunarhæfni heilans. Meðal meðlima í akademíunni eru yfir 90 Nóbelsverðlaunahafar.

EMBO eru samtök vísindafólks sem stuðla að framúrskarandi rannsóknum og samstarfi á sviði lífvísinda í Evrópu og víðar. Samtökin voru stofnuð árið 1964 og aðalmarkmið þeirra eru að styðja hæfileikaríka rannsakendur á öllum stigum starfsferils þeirra, stuðla að miðlun vísindalegra uppgötvana milli fræðafólks í lífsvísindum og styðja við uppbyggingu rannsóknarumhverfis þar sem vísindamenn geta náð einstökum árangri. Samtökin standa m.a. fyrir námskeiðum, vinnustofum og ráðstefnum og útgáfu fimm ritrýndra vísindatímarita. Aðild að EMBO eiga yfir 2.200 félagar í Evrópu og víðar úr heiminum og þeir einir eru kjörnir í akademíuna sem náð hafa afburðaárangri í rannsóknum.

Val á meðlimum í EMBO byggist á tilnefningum og kosningum innan samtakanna en með því á að tryggja að meðlimirnir endurspegli fjölbreytt rannsóknasvið og nýja strauma í lífvísindum. Ragnhildur er í hópi rúmlega 70 vísindamanna frá 23 löndum sem kjörnir eru í akademíuna í ár. Félagar í EMBO sinna margs konar störfum fyrir akademíuna, svo sem setu í ráðum, nefndum og ritstjórnum á vegum samtakanna og valnefndum við styrkjaúthlutanir, og hafa þannig áhrif á framtíð rannsókna og eflingu vísinda í Evrópu.

Ragnhildur lauk BS-prófi í lífefnafræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og doktorsprófi í taugalífeðlisfræði frá University College London árið 2006. Hún starfar sem hópstjóri við Cambridge Stem Cell Institute við Cambridge-háskóla og forstöðumaður MS Society Cambridge Centre for Myelin Repair. Hún starfaði jafnframt sem dósent við Háskólann í Osló á árunum 2012-2018 og hefur verið prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands frá árinu 2018. Fyrir vísindastörf sín hefur hún hlotið fjölda virtra alþjóðlegra viðurkenninga og rannsóknarstyrki.

Rannsóknaráherslur Ragnhildar hafa verið á sviði taugalífeðlisfræði með sérstaka áherslu á mýelín. Það er byggingarefni hvíta efnis heilans en skemmdir á því tengjast m.a. MS-sjúkdómnum. Ragnhildur hefur birt nærri 70 greinar í alþjóðlegum vísindatímaritum, þar á meðal í virtustu tímaritum heims eins og Science og tímaritum Nature-samsteypunnar. Nýverið birti vísindahópur undir forystu hennar grein í Nature þar sem fram kom að skemmdir í hvíta efni heilans geta einnig hrundið af stað einkennum sem tengjast taugahrörnunarsjúkdómum. Einkennin eru hins vegar ekki skaðleg heldur mikilvægur hluti af endurmyndun heilavefs.

„Ég er afar ánægð með að hafa verið kjörin í EMBO. Ég hef verið lánsöm að fá að vinna í framúrskarandi rannsóknarumhverfi og með einstökum doktorsnemum, nýdoktorum og rannsakendum og öðru samstarfsfólki. Þetta er viðurkenning á sameiginlegum árangri fjölmargra og ég vona að hún styðji við starf okkar sem miðar að því að öðlast skilning á því hvernig mýelín myndast, endurnýjast og endurmyndast og hvernig þessir ferlar hafa áhrif virkni heilans, bæði hjá heilbrigðum einstaklingum og sjúklingum, og leiði á endanum til nýstárlegra meðferða við taugahrörnunarsjúkdómum,“ segir Ragnhildur.

Ragnhildur er fjórði Íslendingurinn og fyrsta íslenska konan sem kjörin er í EMBO en auk hennar hafa Guðmundur Eggertsson, erfðafræðingur og fyrrverandi prófessor við HÍ (kjörinn 1984), Eiríkur Steingrímsson, prófessor við Læknadeild HÍ (kjörinn 2004) og Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri deCode (kjörinn 2005), verið teknir inn í akademíuna.

Nýir meðlimir EMBO verða boðnir velkomnir á ráðstefnu sem fram fer í Heidelberg í Þýskalandi í haust.

Share