Sjö rannsóknarverkefni vísindamanna og nemenda Háskóla Íslands hlutu samtals 15 milljónir króna úr Vísindasjóði Göngum saman í ár en styrkir voru afhentir við hátíðlega athöfn í Hannesarholti 22. október. En þess má geta að allir styrkþegar Göngum saman tengjast starfsemi Lífvísindaseturs. Þetta var 20. styrkúthlutun félagsins, sem hefur frá stofnun árið 2007 veitt nærri 200 milljónir króna til grunnrannsókna á brjóstakrabbameinum.
Rannsóknirnar sem hljóta styrki í ár beinast að ólíkum þáttum brjóstakrabbameina, meðal annars meinvarpamyndun, erfðafræðilegum þáttum, efnaskiptum krabbameinsfrumna og þróun nýrra meðferðarleiða.
Með styrkveitingunum leggur Göngum saman sitt af mörkum til að efla grunnrannsóknir á brjóstakrabbameinum hér á landi og styðja við vísindastarf sem getur lagt grunn að framförum í meðferð sjúkdómsins.
Styrkþegar Vísindasjóðs Göngum saman 2026
Adam Ray Smith, rannsóknalektor á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands, hlaut 1.500.000 kr. til verkefnisins Áhrif súrefnisskorts á meinvarpamyndun brjóstakrabbameinsfrumna og möguleg klínísk inngrip.
Alexander Örn Andrésson, meistaranemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands, hlaut 2.000.000 kr. til verkefnisins Áhrif HER2-sértæks peptíðs á frumur í tví- og þrívíðri rækt.
Árni Ásbjarnarson, aðjunkt og rannsóknasérfræðingur við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, hlaut 2.500.000 kr. til verkefnisins Áhrif Azithromycin á sérhæfingu og efnaskipti hvatbera í þríneikvæðum brjóstakrabbameinsfrumum.
Elina María Jónsdóttir, meistaranemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands, hlaut 2.200.000 kr. til verkefnisins Breytingar á viðtakastöðu í estrógenjákvæðum brjóstakrabbameinum hjá BRCA2-arfberum og konum ≤40 ára.
Sigríður Klara Böðvarsdóttir, forstöðumaður Lífvísindaseturs Háskóla Íslands, hlaut 2.500.000 kr. til verkefnisins Magngreining gallsýra í blóðvökva hjá brjóstakrabbameinssjúklingum.
Vera Amanda Varis, doktorsnemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands, hlaut 2.300.000 kr. til verkefnisins Samræktanir til að rannsaka áhrif æðaþelsseyttra þátta á meinvarpsmyndun í brjóstakrabbameini.
Weronika Klaudia Wróbel, meistaranemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands, hlaut 2.000.000 kr. til verkefnisins Mat á virkni sameindalyfja sem virkja ónæmiskerfið gegn HER2-jákvæðu brjóstakrabbameini.